Flottur

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Skoðið myndbandið á á www.crossfiticeland.is þar eigum við flottann mann í aðalhlutverki.

 

Eftir reykjavíkur maraþon

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Reykjavíkur maraþon

Góður árangur var meðal Laugaskokkara í Reykjavíkur maraþoninu.  Margir að bæta sína persónulegu tíma og aðrir að hlaupa sér til skemmtunar.

Hæst ber þó að nefna árangur Þóris og Öggu en þau voru þriðju íslendingarnir í mark í heilu maraþoni  en Þórir var að bæta sinn tíma glæsilega og var á tímanum 3.05.28 og var Agga á tímanum 3:29:46. Jafnfram áttum við líka 4. mann í heilu maraþoni  en það var hann Garðar sem einnig var að bæta sig og hljóp hann á tímanum 3:07:42 og náði þar með lámarkinu í Boston maraþonið. Síðan voru Oddur og Svava að stórbæta líka sína tíma í heilu eða um 15 mín Oddur ofurbætingarmaður um 28 mín rúmar. Saman náði þessi glæsilegi hópur að ásamt Atla Viðari að sigra sveitakeppnina í heilu maraþoni. Síðan má ekki gleyma að reynsluboltinn okkar hann Gotti var líka að bæta sig í heilu.

Í hálfmaraþoninu þar fuku einnig persónleg met og kom þar bæði Berlínar/Chicaco og Búdapestshópurinn sterkur inn í bætingum. Halla með 6 mínútur og Atli Viðar 12 mín bætingu. Einnig var Tóta að bæta sig um einhverjar mínútur Jóna Dóra að fara sitt fyrsta ½ maraþon á flottum tíma. Aðalsteinn sýndi það og sannaði að það er endalaust hægt að bæta sig. Fleirri bætingar sem ég veit um í ½ maraþonu voru hjá Vilhjálmi Óla, Krissu, Davíð og Helgu.

Ekki var minna um persónuleg afrek í 10 km og sumir að klára 10 km keppnishlaup í fyrsta sinn. Karen, Birna og Þórunn voru að fara sitt fyrsta 10 km keppnishlaup og kláruðu með sóma . Daldís var með bætingu og einnig Steinar.

Ekki má heldur gleyma hraðastjórunum en þar áttum við 6 fulltrúa og stóðu þeir sig allir vel og vonandi hafa náð að hjálpa mörgum við að ná takmörkum sínum.

Óska ég öllum Laugaskokkurum til hamingju með hlaupið sitt á laugaradaginn einsog sjá má eru margir að gera góða hluti núna og eflaust er ég að gleyma einhverjum hér í upptalningunni. Hvetur þetta okkur áfram til þess að halda áfram á sömu braut.

Að lokum vil þakka þeim sem komu á föstudaginn að aðstoða við pastaveisluna, án ykkar væri þetta ekki hægt. Einnig vil ég þakka Pétri og Lísu sérstaklega fyrir aðstoðina.

Áfram Laugaskokk

Borghildur

p.s. ég vil þakka þeim sem komu á föstudaginn að aðstoða við pastaveisluna án ykkar væri þetta ekki hægt. Einnig vil ég þakka Pétri og Lísu sérstaklega fyrir sinn þátt í pastaveislunni.

 

Pasta pasta

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Vinna við pastaveisluna fyrir Rvk maraþonið verður í ár í stúku KSÍ. Skipt verður í tvær 2 tíma vaktir. Fyrri vakt frá kl. 15-17 og seinni vakt 17-19:00.

Mun koma með blað til þess að skrá sig á vaktir á æfingu í dag miðvikudag. Þeir sem ekki koma á æfinguna skrá sig hér í kommenti.

Kv BV

 

Sveitakeppni í Reykjavíkurmaraþoni

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Set hérna neðar link á slóð þar sem þið getið skráð ykkur í sveit. Athugið ef einhver byrjar á að skrá sig og aðra í sveit að setja fyrir ofan í hvaða vegalengd. Vona að skýringarnar á skjalnu séu nógu góðar. Gerið copy-pase á linkinn og ef ekkert gerist prufið þá að relouda síðunni.

https://spreadsheets.google.com/ccc?key=0AkkVSI3Y4q9sdGVaQjBCem5RTC00bDBwV3Q4SGVWOUE&hl=en&authkey=CKnzk70F

 

Miðvikudagur

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Ætla bara að minna ykkur á að við vörum 10 km hringinn í Rvk maraþoninu í dag. Förum kl. 17:30 frá Laugum og hlaupum í Lækjargötuna og síðan aftur í Laugar eftir hringinn. Þeir sem ekki vilja taka svona langa æfingu í dag geta hitt okkur við Íslandsbanka í Lækjargötu ca 17:40-45.

 

Fiskidagsins mikla hlaup.

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Það voru ekki alveg allir Laugaskokkarar sem voru í keppnishvíld um seinustu helgi. Tíðindamenn Laugaskokks fundu eina sex Laugaskokkara sem tóku þátt í hlaupi í tilefni Fiskidagsins mikla á Dalvík, sem haldið var sl. föstudag. Okkar menn tóku þátt í tveimur vegalengdum, annars vegar í 25,7 km. hlaupi, s.k. Svarfaðardalshring og hins vegar í 10 km. hlaupi.  Árangur okkar fólks var þessi:

25,7 km. hlaup                                          10 km. hlaup

Dóri     1:52:45, 2. sæti karla                   Oddur      42:08, 3. sæti karla

Tóta      2:12:05, 2. sæti kvenna              Óli            53:33

                                                                      Daníel Ólafsson 58:22

                                                                      Gulla          59: 51

Athygli vekur hvað þau eru samstíga hjónin í 2. sætinu hvort í sínum flokki.  Góður árangur líka hjá Oddi, 2. besti tími hans í 10km. til þessa. Daníel er 11 ára sonur Óla og Gullu og þarna er greinilega mikið efni og framtíðar Laugaskokkari  á ferðinni.   

Til hamingju öll sömul með árangurinn.

 

Síðast uppfært: Mánudagur, 09. ágúst 2010 20:43
 


Síða 1 af 9

Æfingar

Mánudaga 17:30
Laugardalssprettir
Þriðjudaga 17:30
Heiðmörk
Miðvikudaga 17:30
Stígandi
Fimmtudaga 17:30
Byrjendur
Laugardaga 09:30
Langt og hægt

Á döfinni

Mið 08. sep
Byrjendur og vanir
Mið 08. sep
Hlaup
Fim 09. sep
Byrjendur og vanir
Lau 11. sep
Rólegt-póstnúmerhlaup

Innskráning


Nýjasta spjall

  • Æfingabúðir (fyrir 8 dögum)
    Takið þið að ykkur letidýr og skrópagemlinga...
  • góður gestur í æfingbúðum (fyrir 8 dögum)
    Vonandi að Rögnvaldur komi sprækur úr æfingab...
  • Góður gestur í æfingarbúðum. (fyrir 8 dögum)
    Skokkhópur Hamars er kominn með góðann gest, s...
  • Beispeis (Fimmtudagur, 29. júlí 2010)
    Það VERÐUR að fara rólega upp Ingubrekkuna, e...
  • Beispeis (Fimmtudagur, 29. júlí 2010)
    Það er þá hægt að fara rólega upp Ingubrekk...
  • Beispeis í dag (Fimmtudagur, 29. júlí 2010)
    Lítil og létt beispeisæfing verður tekin frá ...
  • Heiðmörkin í dag. (Þriðjudagur, 27. júlí 2010)
    Hvenær ætla menn að vera ca. á ferðinni? Æt...
  • Þorvaldsdalsskokk (Þriðjudagur, 20. júlí 2010)
    Loksins hef ég endurheimt nægilegt andlegt jafnv...